Í lítilli vík í norðri gerast töfrlar lífsins þegar andarungar skríða úr eggjum. Andamamma fer yfir lífsreglurnar með börnum sínum og hversu mikilvægt sé að halda hópinn en einn þeirra gleymir sér yfir undrum veraldar og týnist. Gamall lífsreyndur hundur finnur ungann og með þeim tekst einstök vinátta. Þrátt fyrir að unginn finni öryggi og ást hjá hundinum og fjölskyldu hans þá býr innra með honum þrá eftir frelsi fuglanna.
HÖFUNDUR: Auður Þórhallsdóttir er fædd árið 1974. Áður hefur hún gefið út bækurnar Miðbæjarrottan: Þetta kemur allt með kalda vatninu, Miðbæjarrottan: Borgarsaga, Sumar með Salla og Tönnin hans Luca/El diente de Luca sem var gefin út í samstarfi við Pilar Concheiro.