Elvis önd syndir um með börnunum í baði og skapar buslandi stemmningu!
Hentar vel sem nagdót fyrir krílin, baðdót fyrir þau eldri og einnig njóta þeir sín vel á hillu til að fegra barnaherbergið.
Systurnar Oli & Carol stofnuðu fyrirtækið sitt árið 2015 og vinna með 100% náttúrulegt gúmmí úr Hevea gúmmítrjám. Leikföngin eru handunnin þar sem hugað er að hverju smáatriði. Einnig handmáluð með náttúrulegum litarefnum og hafa þann eiginleika að brotna niður í náttúrunni.