Kinfolk er án efa með krúttlegustu sápukúlusprota sem við höfum séð! Hentar fyrir allan aldur og börnin gleyma sér í sápukúluævintýrinu, elta þær um og reyna að blása litlar sem stórar. Tilvalið til að nota með sápukúluþykkninu frá DrZigs
Sápukúlur efla hreyfingu of fínhreyfingar ásamt því að örva skynjun. Hverjum finnst ekki gaman að reyna grípa og sprengja sápukúlur?
100 Nátttúrulegt. 100% Umhverfisvænt. 100% Eiturefnalaust.
- Niðurbrjótanlegt í náttúrunni
- Framleitt úr endurnýttu sagi og PLA sem er gert úr plöntugrunn (t.d. maíssterkju)
- Framleitt í Ástralíu
Hvernig á að þrífa og geyma sprotana: Eftir notkun er best að þurrka af sápukúluvökvann með klút, einnig má nota kalt vatn til að skola ef þess þarf. Láta þorna vel áður en sett í geymslu. Ekki er mælt með að geyma sprotana í beinu sólarljósi eða í röku umhverfi þar sem þetta er náttúruleg vara, við réttar aðstæður endist hún lengur.
Kinfolk Pantry er Ástralskt fjölskyldu fyrirtæki sem er drifið áfram af ástríðu fyrir skapandi leik í sátt og samlyndi við náttúruna. Þau vilja stuðla að samverustundum fjölskyldunnar og að börnin geti leikið sér að eiturefnalausum og náttúrulegum vörum sem ýta undir ímyndunaraflið og útiveru.